þriðjudagur, október 23, 2007
Blogg blogg blogg
Nú eru bara allir byrjaðir að blogga, Sigga sys er byrjuð og ætlar að halda úti síðu á meðan hún er í danaveldi. Þar ætlar hún að vinna í 1 mánuð eitthvað tengt lögregluskrifstofunni!!!!! veit ekki alveg, en held að hún ætli að taka út hvernig þeir séu í skotvopnadeildinni, en hún er í einhverju því líku hér. Ég ætti að athuga eitthvað svona, sjá hvernig þeir haldi utan um greiðslukerfi hjá bílastæðasjóði í Danmörku hahhahahaha, gæti verið gaman að fá danskan almúgann yfir sig til að rífa kjaft af því það druslaðist ekki til að borga í mælirinn og þá gæti ég sagt, jeg kan ikke forstå dig, jeg kan ikke snakke dansk, best að fari að athuga máli.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Ég veit hvað þú gerir :-) kemur bara með mér og verður minn einkatúlkur. Mikið asskoti væri það nice...............
átti við að ég verði að dröslast með orðabækurnar, ég var aldrei góð í dönsku, ég þarf alveg heilt ár í danaveldi til að ná henni.
Ef þú þarf eitt ár þá þarf ég tíu, svo þú hefur viku til þess að undirbúa þig, hættu að væla og farðu að æfa þig
hilsen Sigga
Mér finnst þú grimm, og ekkert sérlega góð við litlu systur þína
:(
Lauga mín,þú setur bara upp í þig sjóðandi ja,td.kartöflu þá verður þú alveg fullbefaren á now time.Ég man alltaf eina setningu úr dönskubókinni í gamla daga ;nu kommer jeg og taker dig,sagde trollen.Það var mikið af dönum hjá mér í búðinni í sumar og mikið Dskoti er þetta LJÓTT mál. KNÚS úr NESINU.
Skrifa ummæli