föstudagur, janúar 05, 2007

Gleðilegt ár !!!!!



Já gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.
Nú eru liðnir heilir 5 dagar af árinu og systir mín á afmæli í dag (40 ára) og svo ég eftir 2 daga, nú þá er bara árið búið í mínum huga, annars höfðu allir það gott yfir áramótin, skelltum okkur til Keflavíkur til að éta og sprengja og svo að sjálfsögðu til að vera með skemmtilegu fólki.
Eftir svona gott frí er eftir fyrir strákalinga að vakna (Markús og Haukur), ég er nefnilega búin að komast að því að það eru þrjár A manneskjur á heimilinu og tvær B manneskjur, við hin skiljum ekki svona, alltaf sama vesenið á morgnanna og á kvöldin hehehe. Lífið í hnotskurn. A+B= O

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn mín kæra - láttu nú strákastóðið dekra soldið við þig í tilefni dagsins!
Sveitakveðjur,
Ása & co

Sigurlaug Björk sagði...

Takk fyrir mín kæra.