mánudagur, janúar 07, 2008

Afmælisdagur :)

Jæja þá er afmælisdagurinn að verða búinn, og það er sko búið að vera nóg að gera hjá mér í dag. Fyrir utan það að mæta í vinnu, þá var stjórnarfundur hjá mér kl.6 þannig að ég var ekki komin heim fyrr en tæplega 8 og þá átti ég eftir að finna fötin til að komast í ræktina. Já ég sagði ræktina, nú er ég byrjuð og það var sko púlað í 90 mín. svakalega var það gott. Sem sagt ekkert með fjölskyldunni, en ég mun bæta henni það upp.

3 ummæli:

Heiðrún sagði...

til hamingju með gærdaginn, ég var ekkert að senda kveðju í gær, þú varst nefnilega svo upptekin ;)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn þinn í gær - greinilega brjálað að gera sem er gott - alltaf fínt að byrja árið með stæl!
ÁsA

Sigurlaug Björk sagði...

Takk takk takk :-)