miðvikudagur, febrúar 14, 2007

Síðast liðnir dagar

Síðan að það var ákveðið að Gulli færi til Austurríkis í sumar er sko ýmislegt búið að gerast eða þannig. Um helgina fórum við skötuhjúin á skrall og það líka skemmtilegt skrall, komið heim undir morgun, vel blautur hahahaha, að þegar ég vaknaði um hádegisbil var ég bara vel í því enn. Mætti svo bara þunn í vinnuna á mánudegi , dröslaði mér í ræktina og hélt að ég myndi deyja á staðnum, vá hvað það var erfitt, en daginn eftir var mun auðveldara, nú er það bara harkan sex hjá mér í þessu átaki. Ég er sko búin að sjá fullt af fólki þarna sem ég þekki, en ég er sko ekkert að bögga það í öllum sínum svita eða þá mínum hehehehe. Ég sá litla bróður minn djöflast á einhverju hlaupabretti og svo Bjarna Torfa, kennara hérna á nesinu og fleiri og fleiri, en það er sko enginn að tala saman þarna, auðsjánlega allir að hugsa um sín mál, hlaupa á brettinu og horfa á sjónvarpið á meðan.

þetta er gott í bili, ætla að fara að skipuleggja 10 ára afmæli Stulla.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Úff hvað ég ætla sko að hætta að drekka þangað til ég er kominn í almennilegt form.
Þá kannski fer maður að mæta fullur í ræktina!

Nafnlaus sagði...

Ég ætla sko ekki að drekka í bráð, þetta var helv... þarna í ræktinni, maður þyngist víst á því að drekka hehehe.