mánudagur, febrúar 18, 2008

Frú/fröken Nafnlaus

Hver ertu?? þú mátt alveg gefa upp upphafstafinn í nafninu þínu!!!!!!

Annars er allt gott að frétta af okkur hérna á nesinu, og eins og vanalega er alltaf nóg að gera hjá okkur. Er reyndar farin að bíða eftir fríhelgi, það er endalaust eitthvað að gera hjá okkur skötuhjúum, ef það er ekki handboltamót þá er það fótboltamót, starfsdagur, þorrablót þá er það bara eitthvað annað. Bíð eftir að komast norður. Ætla þá að stoppa á hinu Nesinu á leiðinni til baka.
Nóg af mér og komið að honum Sturlaugi mínum hann verður 11 ára á morgun, svakalega er tíminn fljótur að líða og svo strax í næsta mánuði þá verður Markús 9 ára og mér finnst svo stutt síðan að þeir voru pínulitlir. Hvert fór tíminn eiginlega??

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn...já tíminn líður - trúðu mér!!!

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með drenginn :)
þú verður orðin margföld amma áður en langt um líður :)