mánudagur, júlí 21, 2008

Gamalmenni !!!!!!

Já ég komst að því að maður er orðin hálfgert gamalmenni. Við ákváðum að tjalda upp tjaldinu okkar og sjá í hvaða ástandi það væri, tjaldið er í fínu standi en það er eitthvað annað en hægt er að segja um mig. Þar sem tjaldið var tilbúið í garðinum vildu strákarnir endilega sofa í því eina nótt. Ég var ekki alveg tilbúin að leyfa þeim að sofa þar einum, því varð úr að ég svaf með þeim, eða svaf og ekki svaf, upp úr klukkan hálf sex um morguninn gat ég ekki meir og skreið því út, þá meina ég SKREIÐ, ég veit ekki hvernig ég mun fara að fyrir norðan. Nú dreymir mig um að eiga tjaldvagn bara i nokkra daga hehehe, bara á meðan ég er fyrir norðan, er þetta ekki fallegur draumur??
Já það er gott að dreyma.
kveðja Lauga

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahaha,hehe. Aumingja gamla konan,jú veistu ég vorkenni þér hræðilega,seinast þegar ég "svaf" í tjaldi þá var I.R.ca.5 ára,ég gafst upp um 5.leytið og skreið inn í bíl,hét því að gera þetta aldrei aftur og hef staðið við það.Kv.úr Nesinu.