miðvikudagur, september 17, 2008

Frænkuboð á næsta leiti

Já nú er komið að "ÞVÍ" Gurrý systir ákvað að halda næsta frænkuboð, enda kominn tími til, en við munum hittast föstudaginn 26 sept en þá er hún nýbúin að eiga afmæli (24.sept). Kannki fáum við afmælisköku hehehe.
Annars er frekar lítið að frétta af mér, nema það sama og venjulega, vinna skóli, vinna skóli og auðvitað heimilið líka (fjölskyldan). Læra og læra meira. Svona er bara lífið þessa dagana.
Fór reyndar í leikhús um helgina, sá Fló á skinni með vinnunni, Haukur komst reyndar ekki með mér þar sem hann var veikur. Við fórum á Kringlukránna áður og fengum okkur að borða, maturinn var frábær, algjört æði nammi nammi.
jæja komið gott í bili.
Lauga

2 ummæli:

Vesturfararnir. sagði...

Góða skemmtun í frænkupartý!!!
Það hefði verið gaman að koma, bið innilega að heilsa öllum.
Kv.Siffó

Nafnlaus sagði...

Var ekki gaman hjá ykkur?? Bestu kveðjur úr rigningunni á Spáni.